Gleymdi þjóðgarðurinn

Föstudaginn 9. september heldur fyrrverandi nemandi Háskólaseturs Vestfjarða, Alan Deverell, erindi í Vísindaporti. Alan er upprunalega frá Bretlandi en hann kom fyrst til Íslands árið 2009 sem „þroskaður” nemandi í Haf- og strandvæðastjórnun við Háskólasetrið.

Þrátt fyrir að hafa útskrifast úr námi með áherslu á sjávar- og strandumhverfi, var hans fyrsta starf að stjórna verkefni inni í miðri Afríku, fjarri öllu hafi! Síðan þá hefur Alan starfað í mörgum löndum Afríku og ekkert þeirra hefur verið nálægt sjó.

Verkefnið sem Alan stýrir um þessar mundir snýr að stjórnun verndarsvæða og felur í sér að styðja yfirvöld við þróun dýraverndunaráætlana og almenna stjórnun verndarsvæða. Þrátt fyrir að námið hafi leitt hann til Afríku dvelur hann gjarnan á Íslandi á sumrin og starfar í Afríku yfir vetrarmánuðina.

Alan býr yfir mikilli og dýrmætri reynslu sem hann deilir gjarnan, til dæmis á TEDx fyrirlestri, og nú í Vísindaporti á morgun. 

Þar mun Alan fjalla um hans nýjasta verkefni í Lýðveldinu Kongó. Maiko þjóðgarðurinn hefur fengið lítinn stuðning eða viðurkenningu frá því hann var stofnaður árið 1970. Þrátt fyrir að þar megi finna einn mesta líffræðilega fjölbreytileika á jörðinni er Maiko enn lítt þekktur og er eiginlega gleymdur þjóðgarður.

Eins og mörg verndarsvæði í Kongó (DRC) er Maiko nú í alvarlegri hættu vegna ólöglegrar auðlindavinnslu, veiðiþjófnaðar og pólitísks óstöðugleika. Verndarsvæðið nær yfir 10.000 ferkílómetra, án vega eða innviða, og er hertekið af fjölda vopnaðra hópa. Áskoranirnar sem þjóðgarðurinn stendur frammi fyrir eru verulegar.

Samt sem áður gæti einn af vopnuðu hópunum sem hafa hersetið Maiko-skóginn í næstum 60 ár, búið yfir lausninni til að vernda þetta umhverfislega mikilvæga landslag og tryggja afkomu þess fyrir komandi kynslóðir.

Vísindaportið er opið öllum og hefst stundvíslega klukkan 12:10 í kaffistofu Háskólaseturs Vestfjarða á 2. hæð. Erindið fer fram á ensku

DEILA