Ferðalag um náttúru Íslands

Mýsland er tíu stöðva ratleikur sem gerður er fyrir öll stig grunnskóla í tilefni af Degi íslenskrar náttúru. Í leiknum slást þátttakendur í för með hagamúsinni Mýslu og fara í ímyndað ferðalag um náttúru Íslands.

Dagur íslenskrar náttúru er haldinn hátíðlegur 16. september ár hvert og eru skólar hvattir til þess að hafa daginn í huga í starfsemi sinni.

Af því tilefni hefur umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytið, í samvinnu við Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms, miðlað ratleik til allra grunnskóla landsins. Yfirskrift leiksins er „Ferðalag um náttúru Íslands“ og er þar lögð áhersla á sérstöðu náttúrufyrirbrigða íslenskrar náttúru og eru þau samofin, á ævintýralegan hátt, íslensku dýraríki, þjóðlegum vættum og öðrum furðuverum.

Fátt hefur mótað íslenska þjóð eins og íslensk náttúra. Íslendingar hafa þurft að aðlaga líf sitt á harðbýlu landi og þroskast samhliða kröftugum náttúruöflum og gjöfulli náttúru.  

Verkefnið er hægt að vinna jafnt á skólalóð sem og í næsta umhverfi og er hvatt til þess að allir nemendur taki þátt. Það krefst lítils undirbúnings og skólagagna og tekur lengd þess mið af ólíkri getu nemenda.

DEILA