U3A – Háskóli þriðja æviskeiðsins

Með orðinu háskóli er hér átt við upprunalegu merkingu orðsins sem er hópur fólks sem vill helga tíma sinn því að fræðast og fræða. Heiti félagsins felur ekki í sér að félagsmenn skulu vera með háskólamenntun að baki. Allir eru velkomnir sem vilja miðla og/eða bæta við sig þekkingu.

Þegar rætt er um hin mismunandi æviskeið er bernskan og unglingsárin oft kölluð fyrsta æviskeiðið, þá tekur við annað æviskeiðið sem er þá meginhluti starfsáranna með barnauppeldi, skyldur og skuldir.

Þriðja æviskeiðið, sem kannski má kalla „hin gullnu fullorðinsár“ tekur svo við. Þá er átt við þann tíma fullorðinsáranna sem einkennist af minni ábyrgð en fyrr á ævinni, oft viðunandi fjárhagsstöðu og góðri almennri heilsu. Þetta æviskeið, efri ár ævinnar í starfi og eftirlaunaaldurinn, getur varað í mörg ár og áratugi og í nútíma samfélagi á fólk margra kosta völ þegar kemur að því að leita lífsfullnægju og finna sér tilgangsrík viðfangsefni. Þetta „þriðja“ æviskeið á sér tiltölulega skamma sögu og er nátengt auknum lífslíkum þjóða og mannfjöldaþróun í samfélögum nútímans.

U3A í Reykjavík var stofnað 16. mars 2012 sem fyrstu U3A samtökin á Íslandi. Fyrsti formaður þeirra, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, kynnti sér starf U3A á netinu og eftir að hafa farið á alþjóðlega ráðstefnu, World U3A Conference 2010, í Chitrakoot á Indlandi kom upp sú hugmynd að stofna U3A samtök hér á landi. Undibúning að stofnun þeirra önnuðust Ásdís Skúladóttir, Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, Lilja Ólafsdóttir og Helga Margrét Ólafsdóttir.

Í undirbúningi er stofnun Háskóli þriðja æviskeiðsins á Vestfjörðum.

DEILA