Sérveiðileyfi Fiskistofu

Fiskistofa telur rétt að benda á að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.

Núgildandi sérleyfi falla úr gildi þann 31. ágúst nk.

Vegna komandi fiskveiðárs 2022/2023 þarf að sækja sérstaklega um leyfi í eftirtöldum tilfellum: 

  • Dragnótarveiðileyfi
  • Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
  • Leyfi til veiða á beitukóngi *
  • Leyfi til veiða á kröbbum
  • Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)

* Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða.  

Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.

Fiskistofa vekur einnig athygli á að selveiðar eru óheimilar á íslensku forráðasvæði (í sjó, ám og vötnum) nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu.

DEILA