Ný bók – Veran í moldinni – Hugarheimur matarfíkils í leit að bata

Út er komin hjá Forlaginu bókin Veran í moldinni – Hugarheimur matarfíkils í leit að bata eftir Láru Kristínu Pedersen

Af einstakri einlægni og ósérhlífni opnar knattspyrnukonan Lára Kristín Pedersen sig upp á gátt og segir hér frá átakanlegri baráttu sinni við matarfíkn, sem hún hefur glímt við um árabil meðfram því að stunda íþrótt sína af kappi hér heima og erlendis.

Lára hafði reynt að leita sér hjálpar víða en öll sund virtust lokuð hvert sem hún leit. Henni leið eins og hún dveldi ein neðanjarðar, í moldinni, myrkrið alltumlykjandi og engin undankomuleið. Umræðan um matarfíkn virtist ekki fyrirfinnast og úrræðin enn síður, ekki síst fyrir unga konu í íþróttum sem sjálf þurfti að yfirstíga skömmina og átta sig á rót vandans fíkninni.

Með Verunni í moldinni ljær Lára baráttunni við matarfíkn mikilvæga og dýrmæta rödd. Lesendur skyggnast inn í hugarheim matarfíkils þar sem Lára skrifar í dagbókarformi um leit sína að bata, vöxtinn sem fylgdi í kjölfarið, föllin sem geta fylgt sjúkdómnum og hvernig unnt er að blómstra þrátt fyrir að glíma við fíknisjúkdóm.

DEILA