Minni botnfiskafli en meiri verðmæti

Verðmæti afla við fyrstu sölu nam rúmum 100 milljörðum króna á fyrri hluta ársins 2022 sem er 27% aukning samanborið við sama tímabil 2021 þegar aflaverðmæti var tæplega 79 milljarðar.

Verðmæti botnfiskafla var um 70 milljarðar, uppsjávarafla um 25 milljarðar og flatfiskafla um 5 milljarðar.

Botnfiskafli var 236 þúsund tonn á fyrstu 6 mánuðum ársins á móti 264 þúsund tonnum í fyrra og dróst því saman um 11% samanborið við fyrra ár.

Í fyrra var aflaverðmætið um 60 milljarðar en er nú rúmlega 70 milljarðar fyrstu 6 mánuðina að því er fram kemur í tölum Hagstofunnar.

DEILA