Greiðslur Tyggingastofnunar í júlí 17,4 milljarðar króna

Fjöldi viðskiptavina TR sem fékk greiðslur í júlí er 73.971 þar af konur 45.208 (61%) og karlar 28.743 (39%), aðrir 20. Greiddir voru 17,4 milljarðar króna, þar af 3,4 milljarðar í staðgreiðslu skatta. 

Fjölmennasti hópurinn sem fékk greitt eru ellilífeyrisþegar eða 38.541, þar af konur 21.136 (55%), karlar 17.405 (45%). Næst stærsti hópurinn eru örorkulífeyrisþegar eða 19.210 þar af konur 11.760 (61%), karlar 7.441 (39%) og aðrir eru 9. Endurhæfingarlífeyrisþegar voru 2.783, þar af konur 1.763 (63%), karlar 1.014 (37%) og aðrir 7. 

Greiðslur TR í júlí voru 9,2 milljarðar kr. vegna ellilífeyris, 6,2 milljarðar vegna örorku, 1,1 milljarður vegna endurhæfingar og aðrar greiðslur voru 0,9 milljarðar. 

Í júní voru greiðslur TR 19,2 milljarðar króna. Ástæða hærri heildargreiðslna í júní en í júlí er að inneignir sem verða til við uppgjör eru greiddar út í júní.

DEILA