Freyja verður flekklaus

Freyja losnar brátt við flekkina. Ljósmyndi Guðmundur St. Valdimarsson

Varðskipið Freyja er nú komið í slipp í Stavanger í Noregi þar sem það verður málað á nýjan leik í litum Landhelgisgæslunnar. Jafnframt fer fram minniháttar viðhald. 

Verkið var boðið út af Ríkiskaupum og gengið var til samninga við norsku skipasmíðastöðina sem átti hagstæðasta tilboð í verkið.

Gert er ráð fyrir að Freyja verði í Noregi til mánaðamóta og sigli svo flekklaus til Íslands að því búnu.  

DEILA