Fjölgun atvinnutækifæra ungs fatlaðs fólks

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar og Ásmundur Einar Daðason undirrita styrksamkomulag

Mennta- og barnamálaráðuneytið og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hafa ákveðið að veita Þroskahjálp viðbótarstyrk til samhæfingar upplýsinga um námsframboð og atvinnutækifæri. Styrkurinn er liður í stefnu stjórnvalda að fjárfesta í fólki og fjölga markvisst atvinnutækifærum einstaklinga með mismikla starfsgetu.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa undanfarið ár unnið að verkefni um kortlagningu náms- og atvinnutækifæra fyrir ungt fatlað fólk og kynningu fyrir nemendur sem eru að ljúka námi á starfsbrautum framhaldsskóla. Verkefnið hefur enn fremur stuðlað að mikilvægu samstarfi og samtali aðila um atvinnutækifæri fatlaðs fólks.

Verkefnið hófst árið 2020 með styrk frá mennta- og barnamálaráðuneytinu og félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Það var ein af tillögum verkefnahóps á vegum þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis sem fjallaði um úrbætur í menntun, atvinnu og tómstundum fyrir nemendur sem lokið hafa námi á starfsbrautum framhaldsskóla.

Viðbótarstyrkurinn nemur um 17 mkr. til áframhaldandi þróunar verkefnisins á árunum 2023–2024.

Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar sagði við undirritunina:

„Menntun er lykill að atvinnutækifærum og það verður enn mikilvægara í nánustu framtíð, þegar gervigreind og aukin sjálfvirknivæðing eru að útrýma störfum sem ekki krefjast sértækrar hæfni og þekkingar.

Okkar tilfinning er að vitundarvakning sé hjá almenningi um réttindi fatlaðs fólks og munum við vinna áfram í sameiningu að brjóta niður manngerða múra. Eins og segir í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna: Skiljum engan eftir.“

DEILA