Sæbjúgu sett í kvóta

Með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 15. júní sl. er mælt fyrir um að setja skipum aflahlutdeild í sæbjúgum og að skipta þeim niður á veiðisvæði miðað við veiðireynslu á fiskveiðiárunum 2018/2019, 2019/2020 og 2020/2021. 

 Í skjali sem Fiskistofa birtir á heimasíðu sinni má sjá að samtals tíu bátar hafa landað sæbjúgum á þessu tímabili.

Fiskistofa beinir því til útgerðaraðila skipa sem eru með veiðireynslu í sæbjúgum á viðmiðunartímabilinu að fara yfir löndunartölur og hlutdeilda útreikningana og senda inn athugasemdir ef tilefni er til.

Einnig ef útgerðir óska eftir flutningi á veiðireynslu skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða.

DEILA