2,5 milljarðar króna til bænda- Greiðslur í undirbúningi

Unnið er að því í matvælaráðuneytinu að undirbúa greiðslur til bænda samkvæmt tillögum spretthóps sem matvælaráðherra skipaði í júní.

Formaður hópsins var Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans voru í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Tillögurnar hópsins voru að styðja landbúnað sérstaklega með 2,5 milljarða króna framlagi.

Markmiðið er að treysta fæðuöryggi á Íslandi. Kapp er lagt á að hægt verði að inna fyrstu greiðslur af hendi í september.

Gert er ráð fyrir því að stærstur hluti þeirra fjármuna sem er til ráðstöfunar verði greiddur í formi álags á greiðslur skv. búvörusamningum. Greiðslur vegna svína- alifugla- og eggjaframleiðslu eru á áætlun í október.

DEILA