Víkingahátíð á Þingeyri um helgina


Víkingar á Vestfjörðum er félag fólks sem áhuga hefur á menningu, sögu og handverki landnámsfólkssins.

Núna um helgina er svo komið að hinni árlegu víkingahátíð á Þingeyri sem er orðin vinsæll viðburður fyrir alla fjölskylduna.
Setning hátíðarinnar verður á föstudag kl. 20.00 og síðan verður svæðið opið á laugardag frá 11.00 – 16.00 og á sunnudag frá 11.00 – 15.00

Víkingasvæðið verður klætt í hátíðarbúning og öllu til tjaldað og þá aðallega víkingatjöldum.

Víkingar verða í sínum besta víkingaklæðnaði. Enda er þessi hátíð orðin að árlegum sumarhittingi víkinganna og allir geta verið með.
Víkingahandverk verður í aðalhlutverki en einnig verður eldsmiðja á staðnum.

Sérstakir gestir eru félagar úr víkingafélaginu Rimmugýg í Reykjavík.
Og munið það er ókeypis inn.

DEILA