Varptími fugla

Nú er stendur yfir varptími fugla, bæði spörfugla og staðfugla sem hér dvelja yfir sumar og vetur. 

Heimiliskettir eiga það til að vera duglegir í veiðum, þeir sem stunda það á annað borð.

Því er vinsamlegast beint til kattareigenda að passa upp á kettina sína og setja á þá hálskraga og bjöllu svo þeir eigi erfiðara með þessar veiðar. Venjulegur heimilisköttur drepur að jafnaði tugi fugla á viku og eru smáfuglar sérstaklega viðkvæmir yfir varptímann. Farsælast er að halda þeim sem mest innandyra fram í byrjun júlí í það minnsta. 

Þá ber að geta þess að kvartað hefur verið undan köttum sem gera sig heimakomna hjá öðrum hér í Súðavík segir á heimasíðu Súðavíkurhrepps.. 

DEILA