Metafli í maí á strandveiðum

Aflahæstir í maí á svæði A

Í maí lönduðu alls 611 bátar samtals 3.672 tonnum og afli hefur aldrei verið meiri frá upphafi strandveiða árið 2009.  

Þar af var þorskur 3.293 tonn sem er aukning um 699 tonn milli ára.

Þann 30. maí sl. var landað alls 373 tonnum og hefur aldrei verið landað meira á einum degi.  Fyrra metið var 28. júní í fyrra 367 tonn.

Á öllum svæðum jókst afli milli ára.  Hlutfallslega mest á svæði D um 46% og munar þar mestu um góðan ufsafla.

DEILA