Í fótspor Flóka? Lónfellsganga með landverði

Þann 11. júní klukkan 13:00 mun landvörður í friðlandinu Vatnsfirði leiða fræðslugöngu á fjallið Lónfell.

Vegna vegaframkvæmda á Dynjandisheiði mun landvörður hitta áhugasamt göngufólk á bílastæðinu við Hótel Flókalund og þaðan verður sameinast í bíla upp á heiðina þar sem hin eiginlega ganga hefst.


Áætlað er að gangan sem er 5-6 km taki 3-4 klst.
Búnaður: Góðir skór, fatnaður eftir veðri og nesti. Gaman getur verið að hafa sjónauka.
Gangan er nokkuð grýtt en hækkunin ekki mikil.


Fjallið Lónfell er gjarnan nefnt skírnarfontur Íslands þar sem leiddar hafa verið líkur að því að hér sé kominn tindurinn hvaðan Hrafna-Flóki horfði þegar hann nefndi landið Ísland svo sem segir í Landnámu. Fleiri fjöll hafa þó verið kölluð til og sýnist sitt hverjum.

DEILA