Hjólreiðakeppnina Arna Westfjords Way Challenge

Miðvikudaginn 29 júní munu 65 hjólreiðakappar alls staðar að úr heiminum mæta á Ísafjörð til að hjóla tæplega 1.000 kílómetra um Vestfirðir.

Keppnin er fyrsta sinnar tegundar og átak í að laða að og varpa ljósi á Vestfjarðaleiðina sem áfangastað fyrir reiðhjólaferðamennsku.

16 íslensk fyrirtæki styrkja keppnina þar af eru það Arna og 9 önnur fyrirtæki frá Vestfjörðum.

Keppnin er mikið þolraun sem reynir á hæfni, ákveðni og einbeitingu keppenda sem þurfa hjóla langar vegalengdir í gegnum stórfenglegt landslag Vestfjarða meðan þau berjast við náttúruöflin. Í hverjum hluta keppninnar þurfa keppendur að stoppa tvisvar á áhugaverðum áfangastöðum leiðarinnar og hafa því tækifæri til að upplifa og tengjast menningu Vestfjarða.

Keppni líkur að kvöldi 3. júlí þegar keppendur stökkva í höfnina við Kristjánsgötu.

Keppnin hefst klukkan 7:00 um morguninn 29. Júní á Silfurtorgi.

Hvetjum við alla til að mæta á byrjunarlínuna til að hvetja keppendur þegar þeir hjóla af stað 255 kílómetra leið frá Ísafirði að Hótel Laugarhóli. Ef þið sjáið hjólreiðamenn á Vestfjarðaleiðinni á meðan keppni stendur, hvetjið þá áfram, sýnið aðgát og gefið þeim rými þegar þið takið fram úr þeim.

Dagskrá keppninnar

28. júní: Keppnis sýning – Dokkan Brugghús

29. Júní: Keppni hefst 7:00 Silfurtorgi, Frá Ísafirði að Hótel Laugarhóli

30. júní: Frá Hótel Laugarhóli að Vogi Country Lodge Skarðsströnd

01. júlí: Vogur Country Lodge til Patreksfjarðar

02. Júlí: Hvíld og Ævintýradagur á Patreksfirði

03. Júlí: Miðnæturstart og hjólað til Ísafjarðar – Lokahóf Dokkunni Brugghús

DEILA