Útgáfa á breyttu leyfi fyrir Arnalax ehf í Arnarfirði

Kvíar í Arnarfirði. Fiskeldið greiðir hærra gjald í ríkissjóð en greitt er af þorski.

Umhverfisstofnun hefur tekið ákvörðun að gefa út breytingu á leyfi Arnarlax ehf. Arnarfirði.
Breytingin felur í sér stækkun svæða sem rekstraraðili hefur þegar verið með heimild fyrir.


Einnig voru gerðar breytingar og uppfærslur á leyfinu til samræmis við nýjustu leyfi sem gefin eru út af stofnuninni, allar breytingar má sjá í hornklofum í leyfinu.

Tillaga að breyttu leyfi var auglýst á tímabilinu 6. apríl til 5. maí 2022 þar sem hægt var að koma með athugasemdir vegna hennar.

Engin athugasemd barst vegna tillögunnar á auglýsingatíma. Greinargerð vegna útgáfunnar fylgir aftast í starsleyfinu sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 550/2018.

DEILA