Listeria í reyktum laxi og aðskotahlutur í sælgæti

Matvælastofnun varar við  neyslu á  reyktum laxi og reyktum silungi frá Fisherman ehf. vegna listeríu sem fannst í tveimur framleiðslulotum. Fyrirtækið hefur haft samband við Matvælastofnun sem fer með eftirlit með fyrirtækinu og upplýst um innköllunina.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotur:

  • Vörumerki: Fisherman
  • Vöruheiti: Reyktur silungur 300g og hangireyktur lax 250g
  • Framleiðandi: Fisherman ehf.
  • Framleiðsluland: Ísland
  • Geymsluskilyrði: 0-4°C
  • Lotunúmer reyktur silungur er 14138 og 14140 / best fyrir dagsetningar: 17.05.22
  • Dreifing: Bónus, Nettó, Iceland, Hagkaup, Heimkaup, Melabúðin, Krambúðin og Kjörbúðin
  • Lotunúmer á reyktum lax er 14127/ best fyrir 21.05.2022
  • Dreifing: Nettó, Iceland, Hagkaup, Heimkaup, Krambúðin og Kjörbúðin

Í flestum heilbrigðum einstaklingum veldur neysla á listeríumenguðum matvælum ekki sjúkdómi. Áhættuhópar eru barnshafandi konur, ófædd og nýfædd börn,  aldraðir og einstaklingar með skert ónæmiskerfi. Hópsýkingar af völdum listeríu eru mjög sjaldgæfar, oftast er um að ræða einstaklingssýkingar.

Neytendur sem hafa í fórum sínum, í kæli eða frysti, pakkningar með ofangreindri dagsetningu eru beðnir að hafa samband við fyrirtækið í síma 4509000.

Þá varar Matvælastofnun einnig við neyslu á einni framleiðslulotu af S-märkte orginalet Surt skum 70g sem heildverslun Core ehf. flytur inn vegna aðskotarhlutar sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði í samráði við heilbrigðiseftirlit Garðarbæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes (HEF). 

Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotu:

  • Vörumerki: Candy people
  • Vöruheiti: S-Märke Surt skum 70 g
  • Innflytjandi: Core heildssala
  • Best fyrir dagsetning/lotunúmer: 02-11-2022 / 231102
  • Dreifing: Bónus, Hagkaup, Krónan, Iceland, Krambúðir, Kvikk, 10-11, Extra24, Fjarðarkaup, N1, Olís, Melabúðin og Heimkaup.
surt

Neytendur sem hafa keypt hafa vöruna er bent á  að neyta hennar ekki og  skila henni í verslun eða á skrifstofu Core Heildsölu að Víkurhvarfi 1, 203
Kópavogi.

DEILA