Yfirlýsing frá Tálknafjarðarhreppi og Vesturbyggð

Baldur í togi rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar. Mynd: Landhelgisgæslan.

Í ljósi umfjöll­unar um Breiða­fjarð­ar­ferjuna Baldur í þætti Kveiks senda sveit­ar­fé­lögin á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, Vest­ur­byggð og Tálkna­fjarð­ar­hreppur frá sér eftir­far­andi yfir­lýs­ingu.

Í þætt­inum var ömur­legt ástand skipsins sýnt, bæði hvað varðar örygg­ismál sem og almennan aðbúnað.


Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa ítrekað bent á þá staðreynd fyrir daufum eyrum að Breiðafjarðarferjan Baldur uppfylli ekki þá öryggisþætti og aðbúnað sem nútíma ferja á að gera.

Öryggi farþega og áhafnar er stefnt í hættu alla daga og krefjast sveitarfélögin þess að samstundis verði brugðist við og ráðstafanir gerðar. Sveitarfélögin fagna því ef rétt er, að byrjað sé að teikna nýja ferju en þetta var í fyrsta skipti sem þær upplýsingar koma fram og hefur það ekki verið kynnt fyrir sveitarfélögunum.

Í þættinum kom fram að hafin væri endurhönnun á ekjubrúm á Brjánslæk og í Stykkishólmi og stefnt væri að því að Herjólfur III gæti hafið siglingar á haustmánuðum 2023.

Eins og öllum ætti að vera ljóst sem sáu umfjöllun Kveiks er  ekki hægt að draga úrbætur svo lengi og er algjörlega nauðsynlegt að Herjólfur III leysi Baldur af án tafar.

Sveitarfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum krefjast þess að nauðsynlegar framkvæmdir verði settar í algjöran forgang  og  farið verði af stað með þær strax svo hægt verði að leggja núverandi ferju fyrir fullt og allt

DEILA