Það fjölgar í Siðmennt en fækkar í Þjóðkirkjunni

Alls voru 228.546 einstaklingar skráður í þjóðkirkjuna þann 1. apríl sl.  skv. skráningu Þjóðskrár og hefur skráðum í þjóðkirkjuna fækkað um 720 einstaklinga síðan 1. desember 2021.  


Næst fjölmennasta trúfélag landsins er Kaþólska kirkjan með 14.709 skráða meðlimi og hefur þeim fækkað um 28 safnaðarmeðlimi á ofangreindu tímabili eða um 0,2%. 

Fjölgað langmest í Siðmennt en frá 1. desember sl. hefur fjölgunin verið langmest í Siðmennt eða um 160 meðlimi, sem er 3,5% fjölgun. 

Mest hlutfallsleg fjölgun var í Hjálpræðishernum trúfélagi eða um 15,2% og eru nú 182 meðlimir skráðir í félaginu. 

Alls voru 29.383 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga eða 7,8% landsmanna og eru 62.452 einstaklingar með ótilgreinda trúar- eða lífsskoðunarskráningu í þjóðskrá.

Um síðustu mánaðarmót voru 53 trú- og lífsskoðunarfélög skráð í landinu og voru 22 þeirra með innan við 100 skráða félagsmenn.

DEILA