Strandveiðar og veiðiskylda

Smábátar í höfninni á Vatneyrinni á Patreksfirði. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Fyrsti dagur í strandveiðum er 2. maí og í næstu viku verður opnað fyrir umsóknir um þær veiðar.

Fiskistofa beinir því til útgerða sem eiga skip sem fengu úthlutað aflamarki á fiskveiðiárinu að huga að því hvort veiðiskylda hafi verið uppfyllt, þ.e. að skipið hafi veitt 50% í það minnsta af úthlutuðu aflamarki.   

Strandveiðiafli telur ekki upp í veiðiskyldu og  óheimilt er að stunda veiðar samkvæmt öðrum leyfum á meðan strandveiðileyfi er í gildi.

Það er því mjög mikilvægt að útgerðaraðilar sé meðvitaðir um stöðu veiðiskyldunnar áður en haldið er til strandveiða.

DEILA