Pósturinn tvisvar í viku

Frá og með 1. maí 2022 mun Pósturinn dreifa bréfum tvisvar í viku um allt land. Áður var bréfum dreift annan hvern dag en breytingin er viðbragð við verulegri fækkun bréfasendinga.

„Bréfum hefur fækkað gríðarlega á síðustu árum og hefur fjöldi bréfasendinga dregist saman um tæp 80% frá árinu 2010. Þetta er mikil breyting sem gerir það að verkum að við þurfum að breyta þjónustunni í samræmi við nýjan raunveruleika. Á blómaskeiði bréfanna fór Pósturinn með mörg bréf í hverja lúgu, nú er kannski farið í þriðju til fjórðu hverja lúgu með að meðaltali eitt bréf. Á sama tíma fjölgar íbúðum ört víðs vegar um landið sem eykur yfirferð sem þarf að fara yfir,“ segir Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Póstinum.

„Það þarf enginn að örvænta, enda munum við að sjálfsögðu sjá til þess að allir haldi áfram að fá bréfin sín reglulega. Ef dreifing fellur á frídag eða hætta þarf við hana vegna veðurs eða af öðrum ástæðum munum við gæta þess að farið sé af stað við fyrsta tækifæri,“ segir Hörður.

Árið 2021 framkvæmdi rannsóknafyrirtækið Maskína könnun þar sem þátttakendur voru m.a. spurðir um póstdreifingu. Niðurstöðurnar sýndu að um 82,9% þátttakenda telja dreifingu tvisvar í viku henta sér vel. Auk þess kom í ljós að þátttakendur álitu nauðsynlegt að fá bréfapóst 1,28 sinnum í viku að meðaltali.

„Við innleiðingu breytinganna horfðum við til þessarar niðurstöðu úr könnun Maskínu og þeirra laga sem gilda um þjónustuna þar sem krafa er sett um dreifingu tvo daga í viku,” segir Hörður .

DEILA