Óvenju margir létust á fyrsta ársfjórðungi 2022

Í lok fyrsta ársfjórðungs 2022 bjuggu 377.280 manns á Íslandi, þar af 193.730 karlar og 183.550 konurog fjölgaði því landsmönnum um 1.280 á ársfjórðungnum.

Kynhlutlausir voru 90 en vegna smæðar hópsins er honum dreift af handahófi á milli karla og kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu bjuggu 241.560 manns en 135.720 á landsbyggðinni.

Fjöldi fæddra barna á fyrsta ársfjórðungi 2022 var 1.110 en 760 einstaklingar létust.

Fleiri hafa ekki látist á einum ársfjórðungi frá því að Hagstofa Íslands byrjaði að birta tölur um andlát eftir ársfjórðungum.

Á sama tíma fluttust 920 einstaklingar til landsins umfram brottflutta. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 430 umfram aðflutta en aðfluttir erlendir ríkisborgarar voru 1.350 fleiri en þeir sem fluttust frá landinu. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

DEILA