Nýjar reglur varðandi skil á aflaupplýsingum

Fiskistofa vekur athygli á breytingum á reglugerðum sem birtar voru í stjórnartíðindum í gær.

Með reglugerðinni er skýrt betur hvernig rafræn skil á aflaupplýsingum til Fiskistofu skuli háttað.

Heimilt verður að skila upplýsingum í gegnum vefþjónustu Fiskistofu eða á sérstöku formi sem finna má á vefsíðu Fiskistofu. Í undantekningartilfellum og háð samþykki Fiskistofu getur verið heimilt að skila aflaupplýsingum á pappír. 

Aflaupplýsingunum skal skilað áður en skip leggst að bryggju að lokinni veiðiferð og þeir aðilar sem kjósa að nota formið verða að skila því inn með rafrænni undirritun. 

Þjónustugjald verður tekið vegna úrvinnslu aflaskráninga sem skilað er í gegnum skráningarform á vefsíðu Fiskistofu með rafrænni undirritun kr. 898,- fyrir hvern dag og vegna skila á pappír kr. 2.050,- fyrir hvern dag.

Gjaldtakan hefst þann 5. apríl 2022.

DEILA