Norrænt samstarf

Norræna ráðherranefndin, vinnuhópur um líffræðilega fjölbreytni og menningarminjar (NBM),  opið er fyrir umsóknir um styrki 2023. Umsóknarfrestur er til  24. maí 2022. 

Á hverju ári styrkir norræni vinnuhópurinn NBM, norræn samstarfsverkefni sem stuðla að því að stöðva missi á líffræðilegum fjölbreytileika og menningarminjum.

Verkefni sem hljóta styrk eiga að stuðla að því að ná markmiði kafla 5.3, Umhverfi og líffræðileg fjölbreytni, í samstarfsáætluninni um umhverfis- og loftslagsmál.   
NBM mun árið 2023 beina spjótum að verkefnum sem vekja athygli á hnignun líffræðilegs fjölbreytileika ásamt verkefnum um sjálfbæra neyslu og sjálfbæra staði.

Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má nálgast hér á heimasíðunni Norrænt samstarf

DEILA