Kosningarréttur erlendra ríkisborgara við sveitarstjórnarkosningar 14. maí 2022

Kosningarétt við kosningar til sveitarstjórnar eiga;

  • danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu,
  • aðrir erlendir ríkisborgarar sem átt hafa skráð lögheimili hér á landi í þrjú ár samfellt fyrir kjördag, sem náð hafa 18 ára aldri þegar kosning fer fram og eiga skráð lögheimili í sveitarfélaginu.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands eru 31.702 erlendir ríkisborgarar með kosningarétt við komandi sveitarstjórnarkosningar.

Tíu fjölmennustu hópar erlendra ríkisborgara á kjörskrá við sveitarstjórnarkosningarnar eru:

 1. Pólskir ríkisborgarar á kjörskrá13.542
 2. Litáískir ríkisborgarar á kjörskrá2.902
 3. Lettneskir ríkisborgarar á kjörskrá1.269
 4. Rúmenskir ríkisborgarar á kjörskrá1.155
 5. Þýskir ríkisborgarar á kjörskrá971
 6. Danskir ríkisborgarar á kjörskrá857
 7. Portúgalskir ríkisborgarar á kjörskrá856
 8. Breskir ríkisborgarar á kjörskrá788
 9. Spænskir ríkisborgarar á kjörskrá696
 10. Filippseyskir ríkisborgarar á kjörskrá679
     

Á vef Fjölmenningarseturs má finna gagnlegar upplýsingar um framkvæmd kosninga á ensku og fleiri tungumálum,

DEILA