Fuglaflensa staðfest á Íslandi

Fuglaflensa hefur verið  staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undarfarna daga.  Um er að ræða  heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandakirkju við Suðurstandaveg. 

Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir í dag. Sýni hafa verið tekin úr hænsnunum og er beðið niðurstöðu rannsóknar.

Fuglaflensuveiran sem staðfest hefur verið í villtum fuglum er af gerðinni H5. Meinvirkni veirunnar er ekki þekkt. Beðið er niðurstaðna frekari greiningar frá erlendum rannsóknarstofum.   

Þau afbrigði veirunnar sem nú er mest um í nágrannalöndum okkar (H5N1) hafa ekki valdið sýkingum í fólki.  Ekki er talin hætta á að smit berist í fólk við neyslu eggja eða kjöts af alifuglum.  Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.  

Matvælastofnun hvetur almenning til að tilkynna um dauða villta fugla sem finnast á víðavangi ef ekki er augljóst að þeir hafi drepis af slysförum.  Best er að tilkynna í gegnum ábendingarkerfi á heimasíðu Matvælastofnunar (mast.is).  Þörf á sýnatöku verður metin af stofnuninni.

DEILA