Flöskuskeyti í Gilsfirði skrifað 4. júlí 2006

Umsjónarmaður með vefsíðu Reykhólahrepps var á dögunum að skoða lífríkið við Gilsfjarðarbrúna og frá honum er eftirfarandi frásögn sem birtist á vefsíðu hreppsins og segir frá flöskuskeyti sem fannst eftir langan tíma en hafði ekki farið langt.

Var við Gilsfjarðarbrúna en þar voru selir, toppendur, mávar og æðarfugl, svo eitthvað sé nefnt.

Spölkorn fyrir sunnan brúna glitti í plastflösku milli steina í garðinum og þegar betur var að gáð var pappírsrúlla í henni.

Þó að finnandanum þætti nú frekar ólíklegt að þarna væri alvöru flöskuskeyti, þá vandaði hann sig við að ná bréfinu upp úr flöskunni svo það rifnaði ekki.

En viti menn, þarna var skeyti frá 5 ára stúlku á Akureyri. Skriftin á skeytinu er orðin óskýr með köflum, en ef rétt er lesið þá er skeytið sent af stað 4. júlí 2006. Sendandinn er þá sennilega 21 árs núna.

Þó að sendandinn hafi átt heima á Akureyri, þá kemur fram í skeytinu að það var sent af stað við Gilsfjarðarbrúna og hefur því líklega ekki ekki flotið lengra en nokkur hundruð metra á þessum 16 árum.

DEILA