Engir framboðslistar í Reykhólahreppi

Reykhólar.

Föstudaginn 8. apríl kl. 12 á hádegi, rann út frestur til að skila inn framboðum til sveitarstjórnar, og einnig til að skila inn tilkynningum þeirra sem ekki gefa kost á setu í sveitarstjórn.

Í Reykhólahreppi var enginn framboðslisti lagður fram, sem þýðir að það verður persónukjör eins og undanfarnar kosningar.

3 sveitarstjórnarmenn skorast undan endurkjöri, það eru:

Embla Dögg Bachmann Jóhannsdóttir Reykhólum,

Ingimar Ingimarsson Reykhólum,

Karl Kristjánsson Kambi.

Ennfremur gefur Gústaf Jökull Ólafsson Reykhólum ekki kost á sér, en hann var búinn að sitja 3 kjörtímabil samfleytt fyrir næstsíðustu kosningar, og getur því skorast undan að taka kjöri jafn lengi.

DEILA