Eldislax næst verðmætasti nytjafiskur landsins í fyrra


Fiskeldi skilaði ríflega 35 milljörðum króna í útflutningstekjur á síðasta ári sem samsvarar nærri 3% af heildar útflutningstekjum þjóðarbúsins í fyrra. Útlit er fyrir talsverðan vöxt fiskeldis hérlendis sem á heimsvísu á komandi árum.

Um 90% af framleiddu magn var í laxeldi en bleikja og regnbogasilungur mynda uppistöðuna í hinum 10 prósentunum. Eldislaxinn hefur á nokkrum árum tekið fram úr öðrum helstu nytjafisktegundum í útflutningsverðmæti og væntanlega skilaði einungis þorskur meiri tekjum á síðasta ári.

Það gæti hins vegar breyst í ár þar sem loðnan mun líkast til berjast um annað sætið við eldislaxinn í kjölfar stærstu loðnuvertíðar í áratug.

Horfur eru á myndarlegum vexti í fiskeldi hérlendis í ár og næstu ár. Lauslega áætlað gætu útflutningstekjur frá fiskeldi orðið í kring um 45 ma.kr. í ár og slagað hátt í 60 ma.kr. árið 2024, gangi spá Greiningardeildar Íslandsbanka eftir.

DEILA