Alls konar íslenska

Bókin Alls konar íslenska – Hundrað þættir um íslenskt mál á 21. öld er safn fjölbreyttra þátta um íslensku eftir Eirík Rögnvaldsson.

Umfjöllunarefnin eru margvísleg, allt frá eldheitum málvillum og yfir í umræðu um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á 21. öldinni hvað varðar til dæmis viðmið í málrækt, samfélags- og tæknibreytingar og kynjamál og kynhlutleysi í máli.

Meginþráðurinn í umfjöllun Eiríks grundvallast þó á gildi tungumálsins í menningu okkar, að tungumálið sé fyrir okkur öll, ekki útvalda, og nauðsyn þess að umræða um málfar og tungumálið sé jákvæð og umburðarlynd.

Íslenska fyrir alla vekur lesendur til umhugsunar um tungumálið, stöðu þess og framtíð og stuðlar að jákvæðu viðhorfi málnotenda til íslenskunnar.

Eiríkur Rögnvaldsson er prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands og einn helstu forvígismanna um íslenska máltækni. Hann hefur verið óþreytandi við að vekja athygli á stöðu íslenskunnar og efla skilning á tilbrigðum og fjölbreytileik tungumálsins og mikilvægi þess í menningu okkar og samskiptu

DEILA