6.flokkur kvenna í Vestra tók þátt í Goðamótinu á Akureyri

Stúlkurnar í 6.flokki kvenna gerðu sér ferð á Goðamótið á Akureyri um liðna helgi. 

Þær stóðu sig mjög vel á mótinu og er ljóst að framtíðin er björt í kvennaknattspyrnu á Vestfjörðum.

Aðeins eitt lið tók þátt að þessu sinni og lék það í keppni C liða. Liðið endaði mótið í 10. sæti.

Frábær árangur hjá stelpunum sem fengu nú að reima á sig takkaskóna í fyrsta skipti í langan tíma eftir vetraræfingar inni á parketinu.

DEILA