Vindhviður á þjóðvegum

Fyrir nokkrum árum var unnið að kortlagningu og lýsingu á hviðustöðum á helstu þjóðvegum landsins og var verkið styrkt af Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Þar var leitast við að gefa greinargóða lýsingu á vindafari og veðuraðstæðum á þekktum hviðustöðum ásamt því að staðirnir voru hnitsettir.

Við skráninguna var gerð sú meginkrafa að á viðkomandi stað væri þekkt að ökutæki eða vagnar hefðu fokið út af eða lent í öðrum vandræðum vegna vinds.

Með hviðuþekjunni er til reiðu hnitsett kerfi upplýsinga fyrir 99 skilgreinda varasama hviðustaði eða vegkafla.

Eftirfarandi staðir eru í Vestfjörðum:


81.
Barðaströnd- Hamarshyrna (62)

NA-átt
Vel þekkt misvindi í NA-átt á um 10 km kafla þar sem slær fyrir á milli Rauðsdals og Vaðalsdals undir brattri Hamarshyrnunni. Nokkuð algengt, en verst yfir vetrartímann og þarna þurfa ökumenn að sýna talsverða aðgæslu.
82.
Raknadalur (63)

NA-átt
Stuttur kafli fyrir mynni Raknadals í Patreksfirði. Vindmögnun verður niður dalinn og rekur á harða hnúta í verstu veðrum og þá þvert á veginn. Bílar hafa fokið út af.
21
83.
Geirsmúli í Patreksfirði (63)

NA-átt
Um 100 m innan við byggðina á Patreksfirði undir Geirsmúla er stuttur vegarkafli á Barðastrandarvegi þar sem hviður fylgja hvassri NA-átt. Bílar hafa fokið út af, en einkum þegar snjór og hálka er á vegi. Oftast ekki til ama utan vetrarins.
84.
Húsadalur í Tálknafirði (63)

NA-átt
Neðst á veginum upp á Hálfdán ofan við Eysteinseyri. Þarna rekur á öfluga hnúta í algengum NA-stormum á öllum árstímum. Varasamt í kröppum beygjunum upp Húsadalinn.
85.
Bjarnardalur í Önundarfirði (60)

NA-átt / V- og SV-átt.
Varasamur kafli ofan til í Bjarnardal á norðanverðri Gemlufallsheiðinni þar sem bílar hafa fokið út af og orðið slys. Í NA-átt ber töluvert á slæmu endurkasti vinds frá hvilftunum handan dalsins. Algengt í hörðum NA-vetrarveðrum, en fátítt annars. Þegar hvasst er af SV og V skellur vindurinn sér niður í dalverpi með fram Kaldbak. Algengast með mildu
lofti að haustlagi eða í vetrarhlákum fremur en útsynningi með éljum. Ekki algengt en hviðurnar skella þvert á veginn og eru varhugaverðar.
86.
Neðri Breiðadalur (64)

NA-átt
Um 300 m kafli á Flateyrarvegi rétt utan við Neðri-Breiðadal. Sviptivindar standa niður brattan Breiðadalsstigann og þvert á veg. Bílar hafa oft fokið þarna út af.
87.
Arnardalur (61)

S- og SSV-átt
Í hvassri S-átt koma snarpar hviður út Arnardalinn við vestanverða Kirkjubólshlíð á milli Ísafjarðar og Súðavíkur. Þetta er stuttur kafli, en hnútarnir eru þvert á akstursstefnuna. Ekki algengt og þá helst í verstu veðrum. Fok bíla hefur komið fyrir og slys orðið

DEILA