Tvö byggðarlög að hefja þátttöku í Brothættum byggðum

Á myndinni hér að ofan má sjá þau byggðarlög sem hafa tekið þátt í verkefninu Brothættar byggðir. Ljósu byggðarlögin njóta enn virkrar aðkomu Byggðastofnunar í verkefninu en dökku byggðarlögin hafa lokið þátttöku. Nú bætast Dalabyggð og Stöðvarfjörður við.

Um þessar mundir er verið að hefja tvö verkefni í byggðaþróunarverkefninu Brothættar byggðir í samstarfi Byggðastofnunar, landshlutasamtaka og heimaaðila.

Stöðvarfjörður. Í samræmi við ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar er hafin vinna að verkefninu Brothættar byggðir á Stöðvarfirði í samstarfi Byggðastofnunar, Fjarðabyggðar, SSA, Austurbrúar og íbúa Stöðvarfjarðar. Stjórn verkefnisins, skipuð fulltrúum ofangreindra aðila, hefur undanfarnar vikur unnið ötullega að  undirbúningi íbúaþings sem markar upphaf að samráði við íbúa í verkefninu. Íbúaþingið verður haldið dagana 5. – 6. mars n.k. og þar mun þátttakendum gefast tækifæri til að koma áherslumálum á dagskrá og reifa þau með öðrum þátttakendum þingsins. Nánari upplýsingar um þingið má sjá á mynd með fréttinni. Þá hafa orðið þau ánægjulegu tímamót að búið er að ráða Valborgu Ösp Warén sem verkefnisstjóra Brothættra byggða á Stöðvarfirði og er hún boðin velkomin til starfa. Verkefnisstjóri mun sækja þingið. Gera má ráð fyrir að íbúar velji verkefninu vinnuheiti á íbúaþinginu og verður fróðlegt að sjá hvert heitið verður.

Dalabyggð. Í samræmi við ákvörðun stjórnar Byggðastofnunar er hafin vinna að verkefninu Brothættar byggðir í Dalabyggð í samstarfi Byggðastofnunar, Dalabyggðar, Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og íbúa Dalabyggðar. Stjórn verkefnisins hóf nýlega störf og hefur hafið undirbúning að íbúaþingi dagana 26.-27. mars n.k.  Íbúaþingið verður auglýst í staðarmiðlum á næstu dögum. Auglýst hefur verið eftir verkefnisstjóra og er umsóknarfrestur til 7. mars 2022.

DEILA