Starfshópur kynnir tillögur um lausnir í orkumálum á Vestfjörðum

Málþing um orkumál á Vestfjörðum verður haldið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, miðvikudaginn 6. apríl kl 10:30-15:00

Starfshópur umhverfis- orku og loftslagsráðherra um orkumál á Vestfjörðum kynnir tillögur um lausnir í orkumálum á Vestfjörðum. Á fundinum verður farið yfir virkjanakosti á Vestfjörðum, flutning og dreifingu raforku og framtíðarspár um orkunotkun svæðisins. 

Fundurinn hefst með ávarpi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis- orku og loftslagsráðherra

Dagskrá:

Vestfirðir – fullir af orku
Jóhanna Ösp Einarsdóttir, formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga

Skýrsla starfshóps um orkumál á Vestfjörðum
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, formaður starfshóps um orkumál á Vestfjörðum

Orkuþörf og orkuskipti
Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma

Innlegg orkumálastjóra
Halla Hrund Logadóttir

Framleiðsla og dreifing raforku á Vestfjörðum
Elías Jónatansson, Orkubú Vestfjarða
Ásbjörn Blöndal, Vesturverk / HS Orka
Kristinn Pétursson, Austurgil
Ríkharður Örn Ragnarsson, EM Orka

Fundurinn er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður jafnframt streymt og upptöku miðlað á vef Vestfjarðastofu eftir fundinn.

Skráing á málþingið Vestfjarðastofa (vestfirdir.is)

DEILA