Skipasmíði á fullu í Hnífsdal

Í Hnífsdal er Ingi Bjössi á fullu í skipasmíði. Þessa mánuðina eru það togararnir Júní og Júpíter sem eru verkefnið hjá þessum glaðbeitta skipasmið.

Nýsköpunartogarinn Júní GK 345 kom til hafnar í Hafnarfirði 13 mars 1951 og var gerður út af Bæjarútgerð Hafnarfjarðar.

Júpíter var smíðaður í Englandi árið 1925 og var lengi í eigu Tryggva Ófeigssonar útgerðarmanns. Skipstjóri var Bjarni Ingimarsson úr Hnífsdal.

Farið er eftir teikningum við smíði skipanna og hlutföllin höfð 1:25 og áætlað er að smíðinni ljúki í sumar.

Júní nær og Júpíter fjær á myndinni
Að sjálfsögðu er farið eftir teikningum við smíðina
Það eru mörg handtökin við smíðina
Það sem þarf í skipasmíðina kemur úr ýmsum áttu

DEILA