Samningur um smíði nýs rannsóknaskips undirritaður á morgun

Í tilefni 100 ára fullveldisafmælis Íslands samþykkti Alþingi í júní 2018 þingsályktun um að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra væri falið að hefja undirbúning að smíði hafrannsóknaskips sem ætlað er að koma í stað rs. Bjarna Sæmundssonar.

Eftir nær þriggja ára vinnu við hönnun skipsins tók við útboðsferli sem nú er lokið. Ákveðið hefur verið að ganga að tilboði skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armón sem staðsett er í Vigo á Spáni.

Undirritun kaupsamnings mun fara fram í húsnæði Hafrannsóknastofnunar að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði á morgun, fimmtudaginn 31. mars 2022 kl. 16:00.

Þar munu Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, og Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar auk fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar undirrita samninginn.

DEILA