Ríkið hættir að greiða Covid-próf

Þann 1. apríl nk. fellur úr gildi reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna sýnatöku til greiningar á COVID-19.

Reglugerðin tók fyrst gildi 16. september sl. og fól í sér að einkaaðilar sem önnuðust hraðpróf til greiningar á COVID-19, t.d. vegna hraðprófsviðburða eða útgáfu vottorða fyrir ferðamenn, gátu boðið þá þjónustu endurgjaldslaust.

Frá og með 1. apríl verður einkennasýnatöku áfram sinnt hjá heilsugæslu og heilbrigðisstofnunum. Þar verður einnig í boði sýnataka fyrir ferðamenn sem þurfa vottorð vegna ferðalaga gegn gjaldi.

Það má gera ráð fyrir því að einkaaðilar bjóði áfram upp á sýnatöku en sem fyrr segir verður niðurgreiðslum hins opinbera vegna sýnatöku hjá einkaaðilum hætt 1. apríl nk.
DEILA