Minni botnfiskafli í febrúar

Samkvæmt bráðabirgðatölum var heildarafli í febrúar rúmlega 198 þúsund tonn. Þar af nam loðnuafli 161 þúsund tonnum samanborið við 26 þúsund tonn í febrúar 2021.

Botnfiskaflinn var tæp 36 þúsund tonn sem 10 þúsund tonnum minni afli en í febrúar í fyrra.

Sam­drátt­inn má að mestu rekja til þorskafl­ans sem dróst sam­an um 7.500 tonn.

Upplýsingar um fiskafla sem hér birtast eru bráðabirgðatölur Hagstofunnar.

Flest  bendir til þess að aflaverðmæti í febrúar verði 25,7% meira en í febrúar 2021. Nokkur óvissa er í útreikningi á verðmæti loðnu en hér er miðað við meðalverð ársins 2021.

DEILA