Hvernig hefur Loftbrú reynst? – Taktu þátt í könnun

Vestfjarðastofa í samstarfi við Austurbrú, Landshlutasamtökin, Vegagerðina og Byggðastofnun stendur fyrir könnun um Loftbrú.

Loftbrú er úrræði stjórnvalda til að bæta aðgengi landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu í höfuðborginni.

Einstaklingum, sem eiga lögheimili innan skilgreinds svæðis, býðst 40% afsláttur af heildarfargjaldi fyrir allt að 6 flugleggi (3 ferðir fram og til baka) á ári.

Afslátturinn er nýttur með því að sækja sérstakan kóða á vefsvæði loftbru.is. Vegagerðin heldur utan um vefsíðuna og umsýslu með Loftbrú.

Könnuninni er ætlað að meta reynslu notenda, það sem hefur reynst vel og finna þætti sem betur mega fara í útfærslu úrræðisins

>>Taka þátt í könnun

DEILA