Glerbrot í salati og Alsæla MDMA í kampavínsflöskum

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um innköllun á íslensku batavía salati sem Hollt og gott ehf. hefur dreift á markað. Ástæðan er að það fannst glerbrot í vörunni. Framleiðandinn garðyrkjustöðin Ösp, Laugarási hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Suðurlands innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu. Innköllunin á við vöru sem hafa verið á markað eftir 21. febrúar.

Matvælastofnun hefur fengið upplýsingar um tilvik þar sem innihaldi í Moét & Chandon Ice Imperia kampavínsflöskum (3ja lítra frá árinu 2017) var skipt út fyrir efnið MDMA (alsælu). Slíkar flöskur hafa fundist í Þýskalandi og Hollandi og voru þær pantaðar hjá óþekktri vefverslun. Sjö einstaklingar veiktust alvarlega og einn lést vegna þessa. Skv. upplýsingum á vef hollensku matvælastofnunarinnar liggur ekki fyrir hvernig efnið endaði í flöskunum en framleiðandi kampavínsins tilkynnti málið til stofnunarinnar. Að svo stöddu er óvíst hvort fleiri slíkar flöskur eru í umferð.

Matvælastofnun varar við þessu kampavíni sem þó er ekki til sölu á Íslandi. 

DEILA