Fjögurra handa ferðalag – píanótónleikar 27. mars í Hömrum

Með gleði í hjarta kynnir Tónlistarfélagið til leiks tvo frábæra píanóleikara þá Aladár Rácz og Péter Máté.

Báðir eru þeir af ungversku bergi brotnir en fæddir í sitthvoru landinu og kynntust fyrst sem þátttakendur í píanókeppni í Belgrad, árið 1983. Báðir hafa þeir verið búsettir á Íslandi síðan á níunda áratug síðustu aldar.

Aladár og Peter komu fyrst fram sem píanódúó í Salnum í Kópavogi fyrir tæpum 10 árum. Þeir hafa síðan þá leikið saman á ýmsum tónleikum bæði á Íslandi og erlendis.

Á tónleikunum má meðal annar heyra verk eftir: Wolfgang Amadeus Mozart, Ferenc Liszt, George Enescu og Frank Martin.

Tónleikarnir fara fram í Hömrum sunnudaginn 27. mars næstkomandi kl. 17:00

DEILA