Sameining sveitarfélaga -Myndskreytt útgáfa

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið setti nýverið í loftið nýtt myndskreytt vefsvæði um sameiningu sveitarfélaga.

Vefurinn er skreyttur teikningum eftir myndlistarkonurnar Elínu Elísabetu Einarsdóttur og Rán Flygenring.

Á vefsvæðinu eru upplýsingar um ferli sameininga sveitarfélaga, annars vegar í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga og hins vegar reynslu sveitarfélaga af sameiningarferli.

Leiðbeiningar á vefnum um sameiningar sveitarfélaga skiptast í 8 meginskref en þau eru: Óformlegar viðræður, formlegar viðræður, undirbúningur, kynning, sameiningarkosningar, gildistaka, innleiðing og eftirfylgni.

Þá eru veittar ýmsar ítarupplýsingar á vefnum um gildandi lög og dæmi um verklag við sameiningar. Við þróun leiðbeininganna á vefnum var lögð áhersla á að efnið væri skýrt og aðgengilegt.

Auðvelt er að færa sig á milli skrefa með því að velja tiltekið skref í flýtivali hægra megin á hverri síðu í umfjöllun um skrefin. Stefnt er að því að haldið verið áfram að þróa vefinn, m.a. með frekara upplýsingaefni, texta, myndum og myndböndum á næstunni.

Vefsvæði um sameiningar sveitarfélaga 

DEILA