Ferðasjóður íþróttafélaga

Ferðasjóður íþróttafélaga hefur fengið árlegt framlag á Fjárlögum Alþingis, allt frá árinu 2007, til úthlutunar til íþrótta- og ungmennafélaga í landinu vegna keppnisferða innanlands. 

ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS vekur athygli á að skilafrestur til að senda inn umsóknir um styrk úr Ferðasjóði íþróttafélaga vegna keppnisferða ársins 2021 rennur út á miðnætti mánudaginn 10. janúar 2022 (hægt að skila inn til miðnættis þann dag) og ekki verður tekið við umsóknum sem berast eftir þann tíma.

Sótt er um með rafrænum hætti á sérstökum umsóknarvef. Smellið hér til að komast inn á umsóknarvefinn.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan ÍSÍ hafa rétt til að sækja um styrk í sjóðinn, vegna keppnisferða í viðurkenndum íþróttagreinum innan ÍSÍ á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót. 

Styrkur er greiddur út í febrúarmánuði vegna keppnisferða ársins á undan. Framkvæmdastjórn ÍSÍ staðfestir úthlutun sjóðsins áður en hún kemur til greiðslu.

DEILA