COVID-19: Umtalsverðar tilslakanir frá og með morgundeginum

Heilbrigðisráðherra kynnti áformaðar breytingar á fundi ríkisstjórnar í morgun og síðan á blaðamannafundi í Safnahúsinu við Hverfisgötu.

Byggt er á meðfylgjandi minnisblaði sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra. Í því er jafnframt að finna drög að afléttingaráætlun til næstu sex vikna.

Heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnin munu hafa afléttingaráætlunina til hliðsjónar vegna næstu afléttinga og verður staðan metin reglulega, einkum álag á heilbrigðiskerfið, og verður brugðist við í samræmi við stöðuna.

Breytingar frá og með 29. janúar:

  • Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
  • Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
  • Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
  • Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verði heimilt að hafa opið með 75% afköstum.
  • Íþróttakeppnir verði áfram heimilar með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
  • Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
  • Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
  • Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.
  • Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
  • Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
  • Reglugerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febrúar.

Takmarkanir í skólum verða að mestu óbreyttar.

Ráðherra vék lítillega frá tillögum sóttvarnalæknis, þ.e. með því að láta nýju reglurnar taka gildi fyrr, lengja opnunartíma veitingastaða um tvær klukkustundir í stað einnar og hækka hámarksfjölda í verslunum.

DEILA