Gilsfjarðarlína í jörð

Línuleiðin, Gróustaðir næst, Garpsdalur og Gilsfjarðarmúli fjærst.

Á Þorláksmessu var raflínan frá Króksfjarðarnesi að Gilsfjarðarmúla tekin úr sambandi, líklega í síðasta skipti. Þá fækkar enn loftlínum í Reykhólahreppi. Við hennar hlutverki tók þriggja fasa jarðstrengur sem lokið var að plægja niður í sumar. Frá þessu er sagt á vef Reykhólahrepps

Gilsfjarðarlína sem er rúmlega 6 km. var orðin afar viðhaldsfrek og óörugg í vondu veðri, enda orðin meira en hálfrar aldar gömul. Það er svo ætlunin að nýi jarðstrengurinn sem nú flytur rafmagn inn í Gilsfjörð, flytji rafmagn frá Galtarvirkjun í Garpsdal inn á kerfið þegar hún kemst í gagnið.

DEILA