Fagurt galaði fuglinn sá

Bókaútgáfan Sögur hefur gefið út bókina Fagurt galaði fuglinn sá en höfundar eru Helgi Jónsson, Anna Margrét Marinósdóttir og Jón Baldur Hlíðberg sem sá um að teikna myndirnar.

Fuglar heimsins eru falleg og forvitnileg dýr. Þeir fljúga frjálsir um loftin blá og hver og einn syngur með sínu nefi. Þekkja má fuglana af tignarlegu fluginu, fjöðrunum og fögrum hljóðunum/söngnum.

Í þessari bók kynnist þú fuglum af ýmsum tegundum. Þarna eru stærstu fuglarnir og líka þeir allra minnstu. Suma kannast þú örugglega við, en svo eru einhverjir sem þú hefur aldrei heyrt um. Þú færð að vita eitt og annað um líf þeirra og meira að segja hvernig hljóð þeir gefa frá sér. Þeir tala og garga, þeir væla og syngja.

Þegar þú hefur lesið þessa bók og hlustað á öll hljóðin þá geturðu kannski ekki flogið en þú getur sungið eins og fuglarnir, ratað á þá í náttúrunni og heilsað þeim á þeirra tungumáli.

DEILA