Þó að áramótabrennur falli víða niður verður það ekki svo í Vesturbyggð um þessi áramót.
Þar verður kveikt í brennum kl. 20:30 í gryfju við Völuvöll Bíldudal og í Geirseyrarmúla Patreksfirði.
Óheimilt er að koma saman við brennurnar vegna gildandi sóttvarnareglna.
Íbúar eru hvattir til að fylgjast með brennunum úr bílum, frá heimilum eða úr góðri fjarlægð en hópamyndun er óheimil. Mikilvægt er að íbúar virði þessi tilmæli og gæti að sóttvörnum.
Í reglugerð sem er í gildi varðandi sóttvarnir er kveðið á um að hámarksfjöldi aðila sem koma saman sé 20 manns hvort sem er innan- eða utandyra og að tryggt skuli að hægt sé að hafa a.m.k. 2 metra á milli einstaklinga, sem ekki eru í nánum tengslum.
Brennur bæði á Bíldudal og Patreksfirði munu sjást vel frá þeim stöðum þar sem kveikt verður í og unnt er að leggja farartækjum á nokkrum stöðum til að fylgjast með.