Syndum er lokið

Heilsu- og hvatningar átakinu Syndum er lokið

Það hafa 1589 þátttakendur skráð sig inn á síðuna sem hafa samanlagt synt 12878,25km í 12858 ferðum sem gera 9,74 hringir í um landið.

Það hefur verið mikil ánægja meðal þátttakenda og starfsmanna sundlauga og íþróttamannvirkja hvað fólk hefur verið áhugasamt og fundist gaman að geta fylgst með hvað það syndir í hverju sinni. Margir tala um að þeir hafi bætt sig verulega í tíma og sundtækni og til þess er einmitt leikurinn gerður. Vonandi hefur þetta átak einnig kveikt ljósið hjá nýjum sundgestum.

„Við fengum einnig sendar skráningar í gegnum tölvupósta þar sem að sundlaugarnar héldu utan um skráningar af þar til gerðum skráningarblöðum sem lágu frammi hjá mörgum sundlaugum. Það bætist jú auðvitað við tölurnar hér að ofan. Samtalan ætti að verða klár í vikunni, þegar öll blöðin hafa komist til skila.

Sund er auðvitað frábær líkamsrækt og við vonum að þið sem hafið tekið þátt haldið áfram að hreyfa ykkur í þessum dásamlegu sundlaugar mannvirkjum sem við eigum á allflestum stöðum út um allt land.

Við drögum út tvo heppna þátttakendur, miðvikudaginn 1. desember og gefum vöru frá Taramar og árskort í sund“ segir í tilkynningu frá Íþróttasambandi Íslands

DEILA