Styrkir til hreinsunar á strandlengju Íslands

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum lögaðila, s.s. félagasamtaka eða áhugamannafélaga um styrki til verkefna sem felast í hreinsun strandlengju Íslands.

Strandlengjan er um 5.000 km að lengd og er því nauðsynlegt að framkvæma hreinsun hennar með kerfisbundnum hætti. Þar af mun strandlengja Vestfjarða vera um 2.000 km.

Sjálfboðaliðar og frjáls félagasamtök hafa gegnt lykilhlutverki við hreinsun íslenskra stranda hingað til og með aðgerðinni og þessum styrkveitingum er ætlunin að svo verði áfram.

Tilgangurinn með styrkveitingunum er sá að strandlengja Íslands verði hreinsuð með skipulegum hætti, hreinsuðum ströndum verði haldið við, efla vitundarvakningu hjá almenningi um mikilvægi strandhreinsana og virkja áhugasama aðila til þátttöku í átaki um hreinsun strandlengjunnar. 10 m.kr. verður varið í gerð fræðsluefnis og gagnagrunns fyrir verkefnið, en gert er ráð fyrir að styrkþegar veiti Umhverfisstofnun upplýsingar um framgang hvers verkefnis og tölulegar upplýsingar um magn þess úrgangs sem hreinsað er.

Gert er ráð fyrir að styrkjum verði veitt til afmarkaðra verkefna og verða þeir almennt veittir til eins árs í senn.

Heildarstyrkupphæð vegna verkefnisins fyrir árið 2021 eru 20 m.kr.

DEILA